02apríl

Já ... ekki spyrja .. ég veit ekki afhverju ...

Jújú þú hefur rétt fyrir þér ... orðið alltof langt síðan ég bloggaði eitthvað síðast, en líttu á björtu hliðarnar ég er að því núna og hef gert það líka á þessu ári Svalur

flaggg

Það er nokkuð búið að vera í gangi hérna, ég hef klárað ATPL groundschool og núna nýlega blindflugið mitt Ullandi
  Enda var alveg ótrúlega gaman að skella sér í fyrsta blindflugið til að laga bandarísku Visa áritunina ... kallinn þurfti að skella sér til Bahamas sem gekk mjög vel
... "að lækka sig niður í 4000' yfir hafinu í gegnum þessi líka fallegu og drungalegau næturský .. já manni leið ekki mjög vel, en þetta var stuð", en vá í fyrsta millilandafluginu má búast við vandræðum, en allt gékk vel þangað til að taka átti á loft í Bahamas ... eitt sem ég segi ... " Customs / tolla dót er ekki uppáháldið mitt sem stendur Öskrandi

bahamas1

En þrátt fyrir smá reddingar í þeim málum og tæknilega örðugleika og ljósleysi í mælaborði þá var þetta rosalega skemmtileg ferð og maður lærði slatta á þessu Hlæjandi

En auðvitað þá er þetta eins og vanalega ... Sól út í EITT og alltof heitt ... loksins kom smá rigning í dag og ég brosti í allar áttir en það var víst ekki verið að taka myndir af mér ... þetta voru bara þrumur og eldingar ... vá 5aurabrandarinn varð að komast hingað inn Svalur Vona að þið þarna heima og hvar sem þið eruð í heiminum séuð að njóta sólarinnar/rigningarinnar/snjókomunnar/Valla/Strandarinnar/Spegilmynd ykkar ... og fleira er orðinn þreyttur svo að ...

...Yfir og ÚT frá Vallanum Ullandi
02. apríl 2008 klukkan 04:31
Valluz
5 athugasemdir
31janúar

WELLWELL ...

Jæja Þórður átti afmæli í "Hinn Gær" og óska ég honum til hamingju með það að vera orðinn 25 ára ... úfff þetta líður svo hratt, mér líður eins og ég sé búinn að vera hérna í 2 vikur en í raun þá er alveg að ganga á árið Svalur
Þetta er góður staður, fullt af nýju fólki hvort sem það er íslenskt eða öðruvísi Glottandi
Sólin hefur verið rosalega góð undanfarna daga og "EKKI TIL" ský á himni .. já það er rétt ég reyni að leggjast við laugina á meðan ég er að lesa bókina sem ég er í núna Ullandi
salfkj

Ætli maður reyni ekki að stefna á ströndina á milli bókarinnar og svefnsins, svo er bara spurning hvað maður gerir um helgina ... jæja það mun koma í ljós en að sinni .. CIAO Brosandi

... Njótið veðurblíðunnar heima á Íslandi gott fólk, því ég sakna hennar smá

Kv. Valli
31. janúar 2008 klukkan 04:47
Valluz
3 athugasemdir
23janúar

ójá ...

Ég eyddi víst síðasta klukkutímanum að horfa á handboltaleikinn þar sem ísland rúllaði upp ungverjum, seinni hálfleikurinn kom á óvart en góður leikur þrátt fyirir það og loksins unnum við Brosandi
  Auðvitað byrjaði ég daginn á smá sundlaugarferð var nú ekki lengi úti vegna leiksins en ummmm ... sólin er góð Glottandi muhaha

ætlaði bara rétta að kasta á ykkur kveðjum og heilsum .. hafið það gott að sinni

kv.valli
23. janúar 2008 klukkan 20:56
Valluz
1 athugasemd
22janúar

Eftir Jólamatinn

Já ég var víst búinn að gleyma hvað ég ætlaði að vera duglegur með þetta blogg Brosandi

.. En eins og áður þá er ég kominn aftur til Florida og það er búið að vera nóg um að vera áður en skólinn byrjaði, strandarferðir og aðeins að leyfa bumbunni að slappa af eftir jólamáltíðina heima, ég borðaði víst alltof mikið yfir hátíðarnar Glottandi

Ég er að vísu að læra núna undirblindflugið til að ljúka því af, en ég byrja það ekki aftur fyrr en í febrúar og á meðan er kallinn bara að læra ... En eins og ávalt áður þá ætla ég að vera duglegri að halda þessu bloggi við Ullandi

.. En á meðan ... þá ætla ég að henda mér út við sundlaugarbakkann og lesa í sólinni Svalur

kv.valli
22. janúar 2008 klukkan 17:57
Valluz
Engin athugasemd
04nóvember

Hmmmm ... jáhá

Já nú er maður vaknaður eftir langa dvöl í þessu bloggaríi .. í dag er víst sunnudagur og þurfti ég að byrja á því að stilla klukkuna aftur á bak, því nú eru víst 5 tímar á milli mín og íslands .. úffff. Glottandi
En í dag er ég að spá í að kíkja aðeins á ströndina, því já það er sko sól í dag og ekki ský á himni þó að mér finnist svolítið kalt úti núna, enda er klukkan 10 minutur í 11 og ekki nema 24 gráðu hiti Svalur
Svo á eftir eruð við að spá í að kíkja í loftið í smá stund enda orðið langt síðan ég fór síðast upp í flugvél, vegna prófa og það er búið að vera mikið að gera í þessum blessaða skóla hjá mér Brosandi

En bara svona til að kasta kveðju á ykkur þarna heima ... þá kemur það hér ...
HAAAAAALLLLL Ó Ó Ó Ó Glottandi

kv. Valluz
04. nóvember 2007 klukkan 15:50
Valluz
5 athugasemdir
18september

Jáhá ...nú kem ég þessu á skrið .. :D

Ég vil nú byrja bloggfærsluna aá því að senda kveðjur til íslands og láta vita af mér ... ég er enn hérna úti á Flórida ef þið vissuð ekki af því Glottandi Reyndar búinn að vera hálf slappur að koma frá mér bloggi þar sem fyrsta vika skólans var að klárast og var sú fyrsta nokkuð erfið ... En maður verður að koma sér í gírinn Svalur

Enda skelltum við okkur bekkurinn á ströndina á Föstudaginn og busluðum aðeins í sjónum en um kvöldið enduðum við á barnum Paddy's, þar sem við hittumst aftur eftir góða sturtu og sandskolun Ullandi

Á laugardaginn skellti maður sér svo í fótbolta sem var bara gaman, en þegar byrjaði allt í einu úrhellisdemba, létum við okkur hafa það að henda bolunum frá okkur og skella okkur í laugina og njóta "Veðurblíðurnar" .. hehe Öskrandi

asd


Reyndar þá gerðist í gær að nokkur hús skemmdust vegna þurmuveðurs og hvirfilbil aðeins ofar á Florida en í dag ákvað Siggi stormur að kíkja í heimsókn og leyfa okkur að njóta þrumuveðursins og enduðu nokkrar vélar á flugvellinum á hvolfi vegna þessa ... Hissa

sad

Jæja amk hafiði það gott á meðan ...

Kveðja Valli


18. september 2007 klukkan 03:45
Valluz
2 athugasemdir
09september

WELLWELL ....

LOKSINS !! Glottandi Bloggið hefur verið hálf dautt hjá mér síðan ég fór heim, enda skiljanlegt og þið verðið bara að skilja það ... ég kom heim og hitti ykkur svo fór ég aftur úf og byrjaði að læra undir prófin.

sad

    En ég fór á laugardeginum 1.sept upp til Orlando og var þar fastur inni á hótelherbergi í 6 daga lærandi eins og api í búri Ullandi ... en loksins á fimmtudeginum síðastliðinn þá tók ég síðustu tvö prófin mín og keyrði svo aftur til Naples, ekki nema bara skemmtilegur dagur enda hausinn á mér, var orðinn vel steiktur þegar ég kom heim enda hafði ég farið að sofa klukkan 2 nóttina áður og vaknað tvem tímum seinna eða um 4 og byrjað aftur að læra ...... Já má segja að heilinn hafi verið kominn í frí þegar ég var að nálgast heimabæ minn Þögull sem gröfin

salj

En alveg nóg af einhverju bulli hérna ætla ekki að tala um prófin mín lengur, fæ víst að vita hvernig gékk eftir 2 vikur ...
    En núna er ég í fríi reyndar síðasti frídagurinn minn, skólinn byrjar hjá mér á morgun og þá verður gaman að byrja að læra undir ný fög og hitta nýtt fólk, reyndar þá held ég að þeir sem voru að taka prófin með mér um daginn eigi eftir að sitja í skólastofunni með störu á gólfið, því allir voru að stúta sér í lærdómi Ullandi

En nóg af bulli ... ég ætla að nýta síðasta frídaginn að láta sólina leika við mig og njóta þess að vera hérna, kannski maður kíki í kringluna ... hehe Svalur
09. september 2007 klukkan 18:11
Valluz
1 athugasemd
16ágúst

Wohoooo ...

Eins og margir vita þá kom ég aðeins við á Íslandi í nokkra daga til að skemmta fólkinu
slfkj
þar og leyfa því að njóta nærveru minnar Brosandi
...Dagarnir byrjuðu með því að ég gat aðeins verið með Ástu minni og skelltum við okkur í laugardalslaug daginn sem ég kom og höfðum það gott þangað til á þriðjudag, þá var hún á leið til Tenerife og skutlaði ég henni upp á völl og eftir erfiða kveðju stund þá fór ég í komuhliðið og tók á móti mömmu og pabba og allir dagarnir voru frábærir á Íslandi Svalur

SALKF

En já eftir circa 11 - 12 tíma ferðalag þá er ég ánægður að vera kominn aftur í heilu lagi, enda gékk ferðin mjög vel og ég og Linda höfðum það bara gott alla leiðina nema að ég hefði verið til í að sitja í flugvélinni í nokkra daga en henni langaði nú að hoppa út í næsta stoppi Brosandi neinei .. þetta var mjög góð ferð.

Ég gæti auðvitað skrifað endalaust um þessa ferð og farið í allt sem gerðist en ég er þreyttur eftir ferðalagið í gær og mig langar að fara aftur út í sundlaug Svalur .. hehe
En á meðan .. Hafið það gott og njótið lífsins Svalur
Kv. Valluz
16. ágúst 2007 klukkan 22:07
Valluz
3 athugasemdir
04ágúst

it's TIME !

Jæja nú er verslunnarmannahelgin byrjuð hérna í Florida ekki mikið um að vera hjá hinum almenna borgara en Íslendingarnir eru að komast í stuðið Svalur
sa
Ég vona að fólk sé að hafa það gott í öllum bæjarfélugunum og þau sem enda kannski á Apavatni (Tinna + Fannar Brosandi) og auðvitað gleymir kallinn ekki Palla sínum sem er í Eyjum .. en þess má geta að ég væri svo til í að vera heima á Íslandi og skella mér á þjóðhátíð en það þarf að bíða betri tíma Glottandi
hjgkj


Allavega ég lá í leti úti við sundlaug í gær og ætla mér að gera meira af því í náinni framtíð Ullandi

verslunnarmannahelgar kveðja frá Florida .. ég er farinn út að laug
Sjáumst seinna Valli Svalur
04. ágúst 2007 klukkan 12:58
Valluz
1 athugasemd
03ágúst

Ójáááá....

as
nú er soldið langt síðan ég skrifaði eitthvað fyrir ykkur síðast enda ég búinn að vera á fullu í prófum síðustu 2 vikurnar, og hefur það gengið ágætlega Glottandi
    Þar sem síðasta prófið var í dag þá ætla ég að leyfa ykkur að heyra röflið í mér aðeins ... ég kláraði semsagt síðasta prófið í dag og í önnin var enduð með pizzu veislu þar sem við sátum úti í sólinni og lekum okkur á rampinum og auðvitað þá var tekin mynd af hópnum Hissa


    Ég er búinn að tæma borðið mitt í skólanum þar sem ég þarf ekki að fara í skólann í bráðinni "sumarfrí má segja", það er mánuður þangað til að ég fer í lokaprófin í Orlando og ætla ég að taka mér eina og hálfa vikur í afslöppun og liggja í leti Svalur   

    En svo eftir skóla í dag fór ég á ströndina og lá í sandinum og gleypti saltan sjóinn .. koma svo heim og skellti mér í sundlaugina til að skola aðeins af mér og njóta sólarinnar aðeins Svalur

Og bið að heilsa öllum þeim sem eru að njóta verslunnarmannahelgarinnar ... Hafiði það gott og PALLI skemmtu þér úti í eyjum Glottandi ég kem á næsta ári .. ójááááá Ullandi
Læt heyra í mér fljótlega
kv.Valli
03. ágúst 2007 klukkan 00:13
Valluz
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

wohoooo ....

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan